Entry: Tölvan kominn í lag.... Thursday, March 30, 2006



Djöfull er maður nú vitlaus... auðvitað þurfti að uppfæra BIOS í tölvunni, þar sem að nýji harði diskurinn snýst 5400 snúninga en gamli snérist aðeins 4200...  En BIOS sér víst um samskipti milli móðurborðs og harða disksins........  En nóg um það..

Ausfirðingaball á Players á laugardaginn.  Held að það sé skylda að mæta þangað.  Finnst reyndar frekar dapurt hversu lítið þessi böll eru auglýst...

Druslan sem ég keypti enntist ekki nógu lengi til að selja hinn bílinn þannig að ég fæ sennilega ekki krossara alveg strax, fór aðeins of hratt yfir hraðahindrun og framsætið fór í gegnum botninn á bílnum, hef reyndar aldrei kíkt undir hann en myndi skjóta á að botninn á honum væri eitthvað ryðgaður.....

Ánægður með hversu áhugasamt fólk er um það hvenær ég gangi nú loksins út en þeir sem vilja fá frekari upplýsingar um kærusuna verða að spyrja Magga Tóka.

Kv....

   3 comments

Ragga Skvís
May 8, 2006   05:48 AM PDT
 
Bíddu,bíddu nú við las ég rétt???? ertu kominn með skvísu?? og ég vil vita allt um hana takk fyrir:) en þú lofaðir að vera í piparfélaginu með mér:( þú ert hér með rekinn!!! he,he knús í kaf
Svenni
April 9, 2006   08:45 PM PDT
 
Er tölvan nú látin víkja fyrir frúnni?
Trausti
March 31, 2006   11:13 AM PST
 
Mig grunar að þú sért orðinn nýji kók og snakk kóngurinn með nýju frúnni og þess vegna hafi "druslan" fallið saman undan aukinni þyngd þinni???
Er nýja frúin "husky"?????

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments