|
Sæl öllsömul... þar að segja ef það er einhver sem les þetta.... Ekkert merkilegt að gerast frekar en fyrri daginn. Er reyndar að spá í að kíkja á heimaslóðir um helgina og gera eitthvað skemmtilegt. Skilst að það sé Papaball á Egilsstöðum um helgina. Fékk bílinn úr viðgerð í dag þannig að farið var í það eftir vinnu að þrífa hann allan innan sem utan og verður hann væntanlega kominn á sölu í fyrramálið. Svo er maður búinn að vera ofurduglegur í gyminu, búinn að mæta kl 6.00 alla morgna þessa viku, reyndar gengur mjög hægt að ná takmarkinu sem ég ætlaði að ná áður en maður færi að lyfta af krafti, er 1,5 kg sem vill bara ekki fara. Spurning um að drekka laxerolíu og fara svo á viktina. Brosti allan hringinn í dag þegar ég borgaði stöðumælasekt af gamla bílnum sem ég átti sem kom á hann eftir að ég seldi hann. En á þeim tíma sem það tók að færa bílinn af mínu nafni yfir á þann sem keypti hann þá fékk fíflið stöðumælasekt sem ég ætlaði alls ekki að borga. Svo þegar lögfræðingar kostnaðurinn var farinn að leggjast á ´sá ég að sennilega myndi ég ekki græða mikið á að neita að borga.... Svo til að kóróna allt saman þá fékk ég nýja sekt fyrir að leggja ólöglega fyrir utan wordclass í laugardal kl 21:30 í gærkvöldi. 2500 kr sekt fyrir að leggja á gangstétt, en samt er ekki búið að steypa stéttina!!!! Bíllinn stóð sem sagt í drullupolli við hliðina á veginum. Hringdi meira segja sérstaklega í dag til að spyrja hvort þetta væri eitthvað grín en NEI... |
| Svenni February 24, 2006 06:46 AM PST Helvítis moldargangstéttaverðir | ||
| Trausti February 24, 2006 12:43 AM PST hahahhahahaha . Borgaðiru sektina??? Þú ert ekki jafn þrjóskur og ég hélt.. | ||
| Leave a Comment: |