Entry: ruglið... Tuesday, February 21, 2006



Frekar lítið í fréttum hérna meginn.  Helgin var góð, auðvitað vann Silvia evrovision.  Ég kaus hana meira segja 2 svar sinnum og svo flottur karl 1 sinni... Sorrý Magni... en það verður bara svo gaman að sjá hana þarna úti. 

Kíkt var í bæinn bæði á föst og laug en var drykkjan alveg í hófi, var ekkert þunnur á mánudegi sem táknar mjög litla drykkju.

Fordinn fer á verkstæði á morgun til að gera við rispurnar á honum síðan einhver reykvíkingurinn keyrði aftan á mig, svo vonandi á sölu fyrir helgi og svo bara seldur sem fyrst þannig að ég geti keypt krossara.

Helgarrúnturinn á sunnudag var svo Stokkseyri, Eyrarbakki og Þorlákshöfn.  Verð nú að viðurkenna að ég sá ekki margt merkilegt á þeim rúnti.

Til að sjá einhver fjöll ( sem sjást ekki á suðurlandsundilendinu þá fór ég líka upp í einhvern dal að einhverju skíðasvæði, Fyndið að það skuli nánast ekki vera neinn snjór á svæðinu, fann einu sinni ekki skafl til að festa mig í þó svo að bíllinn hafi verið á sumardekkjum.

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments