|
Merkilegt að í þessi fágu skipti sem ég ætla að blogga... sem er nú ekki svo oft þá kemst ég ekki inn á síðuna. Annars var þetta hin rólegasta helgi, kíkti í kaffi upp í Raftholt áðan bara svona til að komast aðeins út úr borginni. Vaknaði reyndar eldsnemma í morgunn eða um 9 30 til að fara á bílauppboð hjá Vöku... þegar við mættum á staðinn kom í ljós að það var ekkert uppboð í dag. Horfði á evrovision í gærkvöldi... Verð bara að viðurkenna það að þó svo að ég kjósi aldrei í símakostningum af því að mér finnst þær heimskulegar og einungis til þess að ná inn peningum, ekki til að leita að sigurvegara þá kaus ég samt sem áður í gærkvöldi... Silvía nótt var alveg að gera sig.. bara flott show og ágætis lag miðað við hversu döpur hin voru. Meira segja Birgitta náði ekki að gera lagið skemmtilegt sem hún söng. Ég er allan vegna nokkuð viss um að nóttin vinni þetta og það á eftir að verða gaman að sjá hana á sviðinu þarna úti... Spurnig um hvernig evrópubúrar höndli húmorinn Hommi og Nammi.... Kíkti í lítið austfjarðarpartý hjá Röggu frá Breiðdal í gærkvöldi.. Alltaf gaman þegar austfirðingar koma saman, var samt sem áður edrú og fór bara heim að sofa þegar liðið fór í bæinn að taka á því. Laugardagurinn fór allur í að þrífa bílinn, vaknaði snemma og fór í bílanaust og keypti nánast allar hreinsivörur sem ég fann og svo var farið í að þrífa, var bara nokkuð sáttur eftir 5 klst þrif, en þá var meira segja búið að fara með uppþvottabursta á mótorinn... Átakið í ræktinni gengur bara nokkuð vel og lítur út fyrir að ég nái markmiðinu bara nokkuð fyrr en ég bjóst við. Er búinn að mæta í Wordclass upp á hvern einasta dag síðan ég keypti kortið og aldrei verið minna en 2 klst á dag,,, Reyndar neyddist ég til að sleppa ræktinni þegar ég var í London, en held að gangan um London vinni það upp, hef aldrei rölt jafn mikið á stuttum tíma. |
| Boggi February 6, 2006 10:38 PM PST Myndir þú trúa því ef ég segði að ég hefði keyrt í gegnum miðbæinn á leiðinni heim og séð að það voru svo langar raðir að ég nennti ekki standa í þeim ;) | ||
| Ragga Diljá (frá breiðdal haha February 6, 2006 10:14 PM PST þú ert svo mikill auli að hafa ekki komið með...þrusustuð á okkur kellingunum hehe! En annars var mjög gaman á fá ykkur í heimsókn :) | ||
| Leave a Comment: |