nafn: Borgþór Geirsson
fæddur: 01 09 78
heimili: Naustabryggja 11
Sími: 848-5569
Mail: bg@thi.is
MSN: borgtorgeirs@hotmail.com
   

<< December 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31

Síður sem ég les
Bragi
Ellen
Eva
Drífa
Guggur
Hafþór
Harpa
Heba
Heiðdís
Hlynur
Linda systir
Magni
Maggi
Máni
Myrkur
Óli Björs
Svenni
Ragga babe
Stína
Þórey
7ris

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed
Thursday, March 30, 2006
Tölvan kominn í lag....

Djöfull er maður nú vitlaus... auðvitað þurfti að uppfæra BIOS í tölvunni, þar sem að nýji harði diskurinn snýst 5400 snúninga en gamli snérist aðeins 4200...  En BIOS sér víst um samskipti milli móðurborðs og harða disksins........  En nóg um það..

Ausfirðingaball á Players á laugardaginn.  Held að það sé skylda að mæta þangað.  Finnst reyndar frekar dapurt hversu lítið þessi böll eru auglýst...

Druslan sem ég keypti enntist ekki nógu lengi til að selja hinn bílinn þannig að ég fæ sennilega ekki krossara alveg strax, fór aðeins of hratt yfir hraðahindrun og framsætið fór í gegnum botninn á bílnum, hef reyndar aldrei kíkt undir hann en myndi skjóta á að botninn á honum væri eitthvað ryðgaður.....

Ánægður með hversu áhugasamt fólk er um það hvenær ég gangi nú loksins út en þeir sem vilja fá frekari upplýsingar um kærusuna verða að spyrja Magga Tóka.

Kv....


Posted at 09:30 pm by borgtor
Comments (3)  

Sunday, March 26, 2006
Biluð tölva

Jæja... kannski ekki búinn að vera sá duglegasti að skrifa hérna en biluð tölva er ástæðan fyrir því, allan vegna að stórum hluta til.   Búinn að vera tölvulaus heima núna í 2 vikur sennilega og það er ekki létt fyrir mann sem er búinn að vera í tölvu nánast upp á hvern dag í mörg ár.   Fyrst þegar vélin hrundi þá var nokkurra daga vinna inn í vélinni þannig að það var farið í að reyna að ná út af disknum öllu sem var inná honum,  það reyndist nokkuð þægilegt fyrir Ottó sem er svo óheppinn að vera eini tölvuséníin sem ég þekki..  Eftir að vera búinn að koma harðadisknum í nothæft ástand þá fór ég og keypti nýjan harðan disk og þar sem ég týmdi alls ekki að fara með vélina í viðgerð þá byrjaði ég að skrúfa hana í sundur til að skipta um disk... Getur ekki verið svo mikið mál...  En jú eftir að hafa fundið hvar hann átti að vera og komið honum í þá er bara alveg sama hversu oft ég set vélina upp þá virkar hún bara ekki almennilega.  Búinn að setja upp windows home, einu sinni.  Windows professinoal 2 sinnum og svo loks fór ég og fékk nýjustu útfærsluna af windows media center og það gekk ekki heldur...  Er farinn að halda að drullusokkarnir í búðinni hafi látið mig fá vitlausan disk og þá á ég eftir að drepa einhvern....      Núna er gamli diskurinn kominn aftur í vélina og skröltir hún í gang á honum...

vonandi verður styttra í næstu færslu en síðast...

kv..


Posted at 06:17 pm by borgtor
Comment (1)  

Wednesday, March 08, 2006
....

Verð nú bara að segja að það er alveg svakaleg bloggleti í gangi, eða kannski er það bara það að það er svo sem ekkert að frétta.  Er að vinna fram á kvöld alla daga og reyni að vera duglegur við að vakna í ræktina kl 6 á morgnanna sem verður svo eiginlega til þess að ég sofna nánast undantekningalaust í sófanum þegar ég kem heim.

Fór reyndar á Skólabrú að borða síðasta laugardagskvöld og fékk frábæran mat,  Ristaða humarhala með andalifrarpylsu og innbakaðan lambahryggsvöðva o.fl...  Bara snilld.  Eftir matinn var svo kíkt út á lífið, ´var reyndar ekki drukkið meira en það að ég náði að hengja jakkafötinn upp á herðartré þegar ég kom heim..

Býð spenntur eftir næstu helgi en þá byrjar formúlann, Machlaren bíllinn er auðvitað langfallegstur í ár eins og þau síðustu og verður gaman að sjá þá rúlla þessu upp þetta árið...

Later....


Posted at 09:01 pm by borgtor
Comments (4)  

Thursday, February 23, 2006
Sektir og aftur sektir...

Sæl öllsömul... þar að segja ef það er einhver sem les þetta....

Ekkert merkilegt að gerast frekar en fyrri daginn.  Er reyndar að spá í að kíkja á heimaslóðir um helgina og gera eitthvað skemmtilegt.  Skilst að það sé Papaball á Egilsstöðum um helgina. 

Fékk bílinn úr viðgerð í dag þannig að farið var í það eftir vinnu að þrífa hann allan innan sem utan og verður hann væntanlega kominn á sölu í fyrramálið.

Svo er maður búinn að vera ofurduglegur í gyminu, búinn að mæta kl 6.00 alla morgna þessa viku, reyndar gengur mjög hægt að ná takmarkinu sem ég ætlaði að ná áður en maður færi að lyfta af krafti, er 1,5 kg sem vill bara ekki fara.  Spurning um að drekka laxerolíu og fara svo á viktina. Big Smile

Brosti allan hringinn í dag þegar ég borgaði stöðumælasekt af gamla bílnum sem ég átti sem kom á hann eftir að ég seldi hann.  En á þeim tíma sem það tók að færa bílinn af mínu nafni yfir á þann sem keypti hann þá fékk fíflið stöðumælasekt sem ég ætlaði alls ekki að borga.  Svo þegar lögfræðingar kostnaðurinn var farinn að leggjast á ´sá ég að sennilega myndi ég ekki græða mikið á að neita að borga....

Svo til að kóróna allt saman þá fékk ég nýja sekt fyrir að leggja ólöglega fyrir utan wordclass í laugardal kl 21:30 í gærkvöldi.  2500 kr sekt fyrir að leggja á gangstétt, en samt er ekki búið að steypa stéttina!!!!  Bíllinn stóð sem sagt í drullupolli við hliðina á veginum.  Hringdi meira segja sérstaklega í dag til að spyrja hvort þetta væri eitthvað grín en NEI...


Posted at 07:34 pm by borgtor
Comments (2)  

Tuesday, February 21, 2006
ruglið...

Frekar lítið í fréttum hérna meginn.  Helgin var góð, auðvitað vann Silvia evrovision.  Ég kaus hana meira segja 2 svar sinnum og svo flottur karl 1 sinni... Sorrý Magni... en það verður bara svo gaman að sjá hana þarna úti. 

Kíkt var í bæinn bæði á föst og laug en var drykkjan alveg í hófi, var ekkert þunnur á mánudegi sem táknar mjög litla drykkju.

Fordinn fer á verkstæði á morgun til að gera við rispurnar á honum síðan einhver reykvíkingurinn keyrði aftan á mig, svo vonandi á sölu fyrir helgi og svo bara seldur sem fyrst þannig að ég geti keypt krossara.

Helgarrúnturinn á sunnudag var svo Stokkseyri, Eyrarbakki og Þorlákshöfn.  Verð nú að viðurkenna að ég sá ekki margt merkilegt á þeim rúnti.

Til að sjá einhver fjöll ( sem sjást ekki á suðurlandsundilendinu þá fór ég líka upp í einhvern dal að einhverju skíðasvæði, Fyndið að það skuli nánast ekki vera neinn snjór á svæðinu, fann einu sinni ekki skafl til að festa mig í þó svo að bíllinn hafi verið á sumardekkjum.


Posted at 09:04 pm by borgtor
Make a comment  

Wednesday, February 15, 2006
Þarf ekki að labba í vinnuna.

Keypti mér nýjan (gamlan) bíl áðan,   Hann heitir NIssan Sunny og ég veit ekki hvaða árgerð hann er né hversu mikið hann er keyrður.  En ég hef samt séð hann hreyftst.  Hann þarf að endast að lágmarki þann tíma sem það tekur að selja Ford Focus...  Reyndar var þessi bíll töluvert ódýrari en ein afborgun af Fordinum....


Posted at 08:42 pm by borgtor
Comments (3)  

Tuesday, February 14, 2006
Sæl nú

Eitthvað lítið að frétta hérna meginn.  Er líka afskaplega latur við að blogga.  En svona til að setja nú eitthvað hérna inn þá...

1.   Ég ákvað að fara og fá mér 6 gramma subway fyrir helgi.  Þegar ég renni að esso í Ártúnsbrekku í rigningu eins og venjulega þá er ekkert stæði laust nálagt nema fatlaða stæðið.  Þó svo að mig hafi langað mikið til að leggja í það þá fór ég í stæði á hinum endanum á bílaplaninu.  Þegar ég er svo búinn að labba frá bílnum og er að koma að inngangnum og fatlaða stæðinu í ausandi vatnsveðri og roki þá kemur svartur bíll, leggur í fatlaða stæðið, út hoppa fjórir fullfrískir hálvitar og hoppa inn og eru á undan mér í röðinni.... Þannig að ég er numer 12... ok blótandi í hljóði þá ákveð ég samt að bíða.  Þegar það kemur svo að fíflunum þá panta þeir 9 subway til að fara með......

2.   Á laug þá fór ég og prufaði krossara upp á Hellisheiði.  Ég þurfti ekki að leika mér á þessu tæki nema í stutta stund þegar ég var búinn að ákveða að ég yrði að eignast svona hjól og er það í fullri vinnslu núna.

3.   Fór í afmælismatarboð til Siggu á laug og fékk betri mat en á bestu veitinarstöðum. 

4.   Eftir matarboðið var haldið á árshátíð og 25 ára afmæli kayaksklúbbsins.  Þar var þónokkuð um drykkju og var mikið stuð á liðinu.  Þar náði ég t.d. að vera 5 síðasti til að detta út úr limbókeppninni...  En við strákarnir urðum þó að láta í minnipokan fyrir kvennþjóðinni.....

En það var nokkuð ljóst að þær töpuðu í drykkjukeppninni....

5.   Á mánudagsmorgunn hringdi ég í tryggingarfélagið til að fá lánaða pening til að kaupa mér krossara.... Þó svo að ég sé búinn að tryggja hjá þeim í mörg ár og aldrei klikkað á greiðslu þá var ekki séns að fá lán til að kaupa krossara nema eiga fasteign... Og það eina sem hann sagði var að ég myndi örygglega þakka honum fyrir seinna....

6.   Næsta hugdetta... Ég á rétt á námslokaláni.... tek það og nota sem útborgun í íbuð og kaup á krossara....  Fannst samt rétt að sleppa því að minnast á krossarann og spurði bankastjórann minn bara hvort ég ætti ekki rétt á þessu láni þar sem ég væri að spá í að kaupa íbúð....  Svarið sem ég fékk var á þessa leið.... Borgþór þú ert nú að verða 28 ára, og það er nóg af einstæðum stelpum á þínum aldri í Reykjavík sem eiga íbúð..... Hehe

7.   Í dag ákvað ég svo að nenna ekki að standa í þessari vitleisu... fór og skáði bílinn á sölu og kaupi svo bara krossara fyrir mína eigin peninga....  Ég hlýt að komast í vinnuna einhvernveginn....

Held að þetta sé fínt í bili....

Kv. Borgþór....

 


Posted at 09:17 pm by borgtor
Comments (3)  

Thursday, February 09, 2006
Austfjarðarþokan

Fékk sendan brandara um austfjarðarþokuna, vil taka það fram að þessi brandari endurspenglar engan vegnin skoðun mína á þessu málum en læt hann vaða samt sem áður....

Þar sem þónokkrir fara óregluleg/reglulega austur að vinna, datt mér í hug
að deila með ykkur skýringu sem ég fékk senda, á Austfjarðar-þokunni:


Þeir sem eru mikið fyrir austan, hafa orðið varir við það sem
er kallað "austfjarðarþokan" sem er þoka sem gjarnan leggst yfir
austurland..  Menn komust að því þegar ég var að vinna þarna að þetta
væri náttúrlega eitt besta dæmi um að þróunarkenningin á við rök að
styðjast þar sem kvenfólkið fyrir austan er það ófrítt að það mundi
ekki vera eðlileg og náttúruleg fólksfjölgun á svæðinu ef að menn hefðu
ekki austfjarðarþokuna til þess að blinda mönnum sýn þegar þeir eru í
leit að bólfélaga.  Þannig að náttúran sér um sína, líka kvenfólk að
austan... :-)


Sel það ekki dýrara en ég fékk það gefins á :o)

Hér eru svo tvær myndir af austfjarðarþokunni svona til útskýringar, þessar myndir voru teknar á  Borgarfirði á sama staðnum með nokkra klst millibili í sumar.

+


Posted at 10:52 pm by borgtor
Comments (4)  

Wednesday, February 08, 2006
Nýjar rannsóknir..

Var að lesa skemmtilega grein áðan og datt í hug að skella nokkrum kommentum úr henni hingað inn.

Ástarvíma er vitfirring.   Kærleiksást er skynsemi.

Rannsóknir segja að við getum auðveldlega lært að elska maka sem við höfum aldrei verið ástfangin af.

Efni sem valda ástarvímu má finna í súkkulaði, til að ná sömu sælutilfinningu þarf að borða 15 kg af súkkulaði.

Bæði í dýrum og fólki er dópamín framleitt sem eins konar verðlaun fyrir vel unnið verk.  Sama gerist þegar fíkill tekur inn fíkniefnið sitt.  Hjá ástföngnu fólki er dópamín-skotið verðlaun fyrir að hafa unnið til þesss að ástin sé endurgoldin.

Ef samband riðar til falls er sem mest kynlíf besta ráðið.  Það getur blásið lífi í hormónstarfsemina.

Fyrir ástfangið fólk er það versta sem komið getur fyrir að vera yfirgefið af stóru ástinni sinni.  Í stað þess að skapa jákvæðar tilfinningar herja hormónin nú á líkamann með neikvæðum afleiðingum, svo sem, depurð, þunglyndi, hefndarþorsta og reiði.  Dópamínið sem heilastofninn framleiðir verðlaunar nú svívirðilegar athafnir og haturshugsannir í staðinn fyrir árangur í ástalífinu.

Í sæði karlmanns er mikil hormónablanda sem lyftir geði konunnar.

Smokkar valda konum depurð.

Kauptu kynlíf í apótekinu.  Ef yfirvöld myndu leyfa þá væri hægt að selja ástarhormónaplástra, en þau eiga árðanlega eftir að bíða enn um hríð.

Úr Lifandi vísindi Nr.3/2005


Posted at 06:27 pm by borgtor
Make a comment  

Sunday, February 05, 2006
Ekki alveg að gera sig þetta blogdrive núna

Merkilegt að í þessi fágu skipti sem ég ætla að blogga... sem er nú ekki svo oft þá kemst ég ekki inn á síðuna. 

Annars var þetta hin rólegasta helgi, kíkti í kaffi upp í Raftholt áðan bara svona til að komast aðeins út úr borginni.  

Vaknaði reyndar eldsnemma í morgunn eða um 9 30 til að fara á bílauppboð hjá Vöku... þegar við mættum á staðinn kom í ljós að það var ekkert uppboð í dag.

Horfði á evrovision í gærkvöldi... Verð bara að viðurkenna það að þó svo að ég kjósi aldrei í símakostningum af því að mér finnst þær heimskulegar og einungis til þess að ná inn peningum, ekki til að leita að sigurvegara þá kaus ég samt sem áður í gærkvöldi...  Silvía nótt var alveg að gera sig.. bara flott show og ágætis lag miðað við hversu döpur hin voru.  Meira segja Birgitta náði ekki að gera lagið skemmtilegt sem hún söng.  Ég er allan vegna nokkuð viss um að nóttin vinni þetta og það á eftir að verða gaman að sjá hana á sviðinu þarna úti...   Spurnig um hvernig evrópubúrar höndli húmorinn Hommi og Nammi....

Kíkti í lítið austfjarðarpartý hjá Röggu frá Breiðdal í gærkvöldi..  Alltaf gaman þegar austfirðingar koma saman, var samt sem áður edrú og fór bara heim að sofa þegar liðið fór í bæinn að taka á því.

Laugardagurinn fór allur í að þrífa bílinn, vaknaði snemma og fór í bílanaust og keypti nánast allar hreinsivörur sem ég fann og svo var farið í að þrífa, var bara nokkuð sáttur eftir 5 klst þrif, en þá var meira segja búið að fara með uppþvottabursta á mótorinn...

Átakið í ræktinni gengur bara nokkuð vel og lítur út fyrir að ég nái markmiðinu bara nokkuð fyrr en ég bjóst við.  Er búinn að mæta í Wordclass upp á hvern einasta dag síðan ég keypti kortið og aldrei verið minna en 2 klst á dag,,, Reyndar neyddist ég til að sleppa ræktinni þegar ég var í London, en held að gangan um London vinni það upp, hef aldrei rölt jafn mikið á stuttum tíma.


Posted at 07:01 pm by borgtor
Comments (2)  

Next Page