nafn: Borgþór Geirsson
fæddur: 01 09 78
heimili: Naustabryggja 11
Sími: 848-5569
Mail: bg@thi.is
MSN: borgtorgeirs@hotmail.com
   

<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30

Síður sem ég les
Bragi
Ellen
Eva
Drífa
Guggur
Hafþór
Harpa
Heba
Heiðdís
Hlynur
Linda systir
Magni
Maggi
Máni
Myrkur
Óli Björs
Svenni
Ragga babe
Stína
Þórey
7ris

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed
Monday, January 30, 2006
Alltaf gott að koma heim.

Verð nú að viðurkenna það að eftir að hafa tekið þrjár lestir til að komast á flugvöllinn og sitja þar í 2 klst og svo 3 klst í flugvélinni þá var það nú bara nokkuð gott að komast heim.

Náði að skoða ótrúlega mikið m.v. að hafa verið í vinnuferð og stoppað í 5 daga.  Það sem stendur þó mest upp úr er vísinda safnið sem við kíktum á. 

McLaren bíllinn sem Mika klesti.

Á þessu safni voru allar geimflaugar, merkilegir bílar, flugvélar og allir aðrir hlutir sem eiga sinn þátt í vísindaframförum í heiminum.

Löppuðum hring í Hyde park sem er stærðsti garðurinn í London, fórum reyndar sérstaklega til að skoða minningargosbrunn Diönu en eftir 2 klst rölt þá var hann ekki í gangi á þeim tíma sem við vorum þarna.

P.S  Harpa, þú hefðir betur varað mig við þessum börum fyrr Wink

Djammið var tekið fyrir á föstudagskvöldi og þræddum við alla skemmtistaði sem við fundum, best að sleppa djammsögunni hérna þó svo að hún gæti örugglega skemmt mörgum....


Posted at 09:52 pm by borgtor
Comment (1)  

Thursday, January 26, 2006
London

Spurnig um að láta aðeins vita af sér.  Fór til London til að hitta arkitekt og byggingarverkfræðing á þriðjudag, ferðin átti að vera dagsferð og átti að vera flogið heim í gær miðvikudag.  Á fundinum var svo ákeðið að annar fundur yrði á sunnudaginn.   Þegar svo var komið þá var ákveðið að það væri bara best ef ég færi ekkert heim fyrr en eftir það.  Þannig að ég stóð bara í London með engin föt til skiptanna eða neitt annað...

Þurfti að byrja að versla föt og annað nauðsynlegt dót..  Bý í götu sem heitir Montphirler street og er það einbýlis sem er í götu við hliðina á Harrods verslannakeðjuni.  Bjór og rauðvín er selt í sjoppunni á móti húsinu og kostar kippa af bjór um 500 kr.

Skrifa meira síðar.. Erum að fara niður á Oxfordstreet að borða og kíkja á skemmtannalífið... Var sagt að pöbbarnir væru opnir til 3 alla daga vikunnar þar...

kv


Posted at 05:34 pm by borgtor
Comments (3)  

Monday, January 23, 2006
Í fréttum er það helst...

Það er nú bara eiginlega ekkert í féttum.

Verð nú reyndar að segja frá því þó svo að ég hafi ekki ætlað að gera það, að ég fór í partý á föstudagskvöld.  Var með kippu af bjór og bara í nokkuð góðum fínling.  Ekki nema það að ég mætti á svæðið þá voru aðrir byrjaðir að fá sér og bara nokkuð góður fílingur í liðinu, fengu margar gamlar og góðar sögur að fljúga.....  Ekki nema það að þegar ég var kominn á annan bjór og það er verið að ræða tap í spurningakeppni framhaldsskólanna.  Eitthvað lið vissi ekki hver var númer 14 hjá einhverju NBA liði....   Og það var nóg fyrir Tókan og Gugg, einhver minntist á bolta og sveitta hálfnakta karlmenn... Og næsta 1 og hálfan klukkutíman var hnakkrifist um þjálfarana í Ítalska fótboltanum.... Ekki Íslenska.... Ekki Enska.... Nei heldur Ítalska boltanum!!!!  Þegar ég fékk nóg þá voru 3 farnir út og gafst ég upp um 00:30 og ákvað að það væri skárra að fara heim að sofa...   Þið getið ímyndað ykkur hversu leiðinlegt þetta var þegar ég fer frekar heim að sofa með 4 fulla bjóra í hendinni!!!!!!

Ekki var dottið í það heldur á laugardagskvöldið, held að ég hefi ennþá verið með hroll frá kvöldinu áður....

En að öðru.... Ég fór og keypti mér lás á skápinn í ræktinni fyrir helgi, nokkuð nauðsynlegur hlutur nema maður vilji láta stela dótinu sínu...  En vegna þess að það eru bara opnir vasar á íþróttabuxunum þá ákvað ég að geyma aukalykla af lásnum í bílnum ef hinir myndu nú detta úr vösunum, nokkuð bright fannst mér nú.  Svo kom að því í kvöld að ég kem rennandi sveittur niður og ætla að opna skápinn minn... auðvitað var ég búinn að missa lyklanna einhverstaðar.   Þá var nú aldeilis gott að eiga varalykla af lásnum út í bíl....  Eða þ.e.a.s. ef lyklarnir af bílnum væru ekki læstir inní skáp!!!!

Þá er það spurning,

a.   Á ég að taka leigubíl heim og ná í varalyklana af bílnum, kostar c.a. 2000 kr.

b.   Láta lyklasmið koma og opna bílinn fyrir 4500 kr

c.   Eða brjóta upp lásinn sem kostaði 225 kr

En þetta er fínt í bili held ég... London í fyrramálið... ætlaði að pakka í tösku en er ekki alveg viss hvað ég þarf að taka með þangað til að stoppa í 20 klst...


Posted at 09:59 pm by borgtor
Comment (1)  

Friday, January 20, 2006
Enn ein helgi...

Einhvern veginn finnst mér alltaf vera helgi...  samt mann ég eftir því að einu sinni maður var alltaf að bíða eftir næstu helgi... Merkilegt. 

Ekki er búið að plana helgina neitt enda var tekið ágætlega á því síðustu helgi.  Reyndar voru sögusagnir af einhverju teiti í kvöld....

´Þó svo að mér finnist fátt leiðinlegra en að rölta um búðir og versla föt þá verð ég samt að mæta með rýmingarútsölunni í Outlet í faxafeni.  Leit inn þar áðan og fór út með 2 fínar gallabuxur, 2 Everlast peysur, 1 everlast íþróttabuxur, 2 spariboli,  4you skyrtu og Bertoni sparijakka......  Og verð...... 11.500 kr. 

svo er það síða dagsins... myndir  Á þessari síðu getur maður keypt innrammað copy af hvaða listaverki sem er.

Fann þessa mynd þarna....  bara töff...


Posted at 04:28 pm by borgtor
Make a comment  

Wednesday, January 18, 2006
.........

Ég vil byrja á að þakka fyrir hamingjuóskir í tilefni útskriftar.

En eins og þeir sem lesa þessa síðu vita líklega þá var útskrfitin á laugardaginn síðasta. 

Ég er þarna einhverstaðar.

Hluti af bekknum, Valdi, Hjalti að taka mynd á móti, Eyþór, Erlingur og Davíð.

Hér er svo þetta blessaða plagg sem það er búið að taka 5 ára að ná í.

Svo var dottið vel í það um kvöldið, get lítið farið út í hvernig það var... oft getur verið kostur að vera minnislaus.  Þá er allan vegna enginn mórall daginn eftir....Var eitt af þessum kvöldum sem það þurfti að skoða kortafærslur til að rifja upp hvert var farið, samkvæmt þeim var það Óðal, Nasa, Hressó og svo endað á einhverjum Pizza stað sem ég hef ekki hugmynd hvar er.  Eftir að hafa skoðað leið kvöldsins er gott að nota google.com til að finna hverjir eiga nýju símanúmerin í símanum Shades  Sem sagt mjög gott kvöld... Hehe

Ég þarf líka eitthvað að venjast vinnunni, hef ekki vanist því að sitja á afturendanum allan daginn og teikna.  Eins gott að maður noti nýja kortið í ræktina ef maður á að halda áfram að sitja allan daginn...

Later


Posted at 04:45 pm by borgtor
Comments (3)  

Wednesday, January 11, 2006
Leti

Merkilegt að maður skuli vera latari við að skrifa hérna núna loks þegar nægur tími er til þess.  Eftir að hafa verið í námi núna í 5 ár og ekki haft tíma til að gera nokkurn skapaðan, þá loks er nægur tími og ég hef bara ekkert að gera.  Vinn 8 klst á dag og það er bara rétt hálfur dagur.  Verð að fara og finna eitthvað gott áhugamál til að gleyma mér í. 

Er að vinna að verkefni í vinnunni við burðarþolsreikninga og þrívíddarteikningu fyrir einhvern arkitekt í London, á víst að fara út og hitta hann í næstu viku og svo eru miklar líkur á að ég fari og vinni þar í 2 vikur í febrúar.

Svo er víst útskrift í Borgarleikhúsinu á laugardaginn, búið að versla ný jakkaföt og bindi.... þó svo að það fari ekkert meira í taugarnar á mér en að ganga með bindi.   Reikna með því að það verði eitthvert fjör um kvöldið og ekki ólíklegt að öl verði um hönd  :)

þangað til næst....

 


Posted at 09:38 pm by borgtor
Comments (8)  

Saturday, January 07, 2006
Pakk

Verð nú að viðurkenna að ég er nú bara nett svektur út af þessum tónleikum.  Hefði verið mjög gaman að fara á þá.  Afhverju gátu þeir ekki verið til styrktar einhvers annars?  Þó svo að ég sé mjög mikill náttúruunnandi og allt það þá kemur bara ekki eitt orð af viti upp úr þeim sem tala fyrir þessa náttúruverd.    En ég nenni ekki að svekkjast á þessu... kemur allan vegna ekki til mála að ég styrki þetta pakk.

Vil benda á mjög svo skemmtilega grein hjá Svenna um þessa vitleysinga. http://sveinnel.tk/

 


Posted at 03:30 pm by borgtor
Make a comment  

Thursday, January 05, 2006
Sælt veri fólkið...

Jæja.  Djöfull var ég nú duglegur að blogga í desember.

Nú er maður mættur í borgina eftir jólafrí á austurlandinu, þannig að það er víst enginn afsökun á því að skrifa ekki neitt lengur.

Helstu er í fréttum að ég er búinn með námið, kallinn orðinn Véltæknifræðingur.  Lokaverkefnið gekk bara mun betur en ég þorði að vona, fékk 9 í einkun sem ég er bara mjög sáttur við þar sem það var enginn í minni deild sem fékk hærri einkun.

Ég fór víst á tvö böll á austurlandinu í jólafríinu þó svo að ég vilji meina að ég hafi bara farið á eitt... mann allanvegna bara eftir einu.

Skrifa meira um fjörið á austurlandinu þegar ég verð búinn að koma myndunum inn í vélina, nenni því alls ekki núna.


Posted at 09:11 pm by borgtor
Comment (1)  

Monday, November 28, 2005
MSN


Posted at 12:49 pm by borgtor
Comments (6)  

Thursday, November 24, 2005
Leiðindi....

Djöfull sem ég er kominn með nóg af þessu verkefni.... Hef kannski minnst á það áður....

Posted at 05:09 pm by borgtor
Comments (4)  

Previous Page Next Page