|
|
 |
 |
Tuesday, February 21, 2006
Frekar lítið í fréttum hérna meginn. Helgin var góð, auðvitað vann Silvia evrovision. Ég kaus hana meira segja 2 svar sinnum og svo flottur karl 1 sinni... Sorrý Magni... en það verður bara svo gaman að sjá hana þarna úti.
Kíkt var í bæinn bæði á föst og laug en var drykkjan alveg í hófi, var ekkert þunnur á mánudegi sem táknar mjög litla drykkju.
Fordinn fer á verkstæði á morgun til að gera við rispurnar á honum síðan einhver reykvíkingurinn keyrði aftan á mig, svo vonandi á sölu fyrir helgi og svo bara seldur sem fyrst þannig að ég geti keypt krossara.
Helgarrúnturinn á sunnudag var svo Stokkseyri, Eyrarbakki og Þorlákshöfn. Verð nú að viðurkenna að ég sá ekki margt merkilegt á þeim rúnti.

Til að sjá einhver fjöll ( sem sjást ekki á suðurlandsundilendinu þá fór ég líka upp í einhvern dal að einhverju skíðasvæði, Fyndið að það skuli nánast ekki vera neinn snjór á svæðinu, fann einu sinni ekki skafl til að festa mig í þó svo að bíllinn hafi verið á sumardekkjum.

Posted at 09:04 pm by borgtor
Permalink
Wednesday, February 15, 2006
Þarf ekki að labba í vinnuna.
Keypti mér nýjan (gamlan) bíl áðan, Hann heitir NIssan Sunny og ég veit ekki hvaða árgerð hann er né hversu mikið hann er keyrður. En ég hef samt séð hann hreyftst. Hann þarf að endast að lágmarki þann tíma sem það tekur að selja Ford Focus... Reyndar var þessi bíll töluvert ódýrari en ein afborgun af Fordinum....

Posted at 08:42 pm by borgtor
Permalink
Tuesday, February 14, 2006
Eitthvað lítið að frétta hérna meginn. Er líka afskaplega latur við að blogga. En svona til að setja nú eitthvað hérna inn þá...
1. Ég ákvað að fara og fá mér 6 gramma subway fyrir helgi. Þegar ég renni að esso í Ártúnsbrekku í rigningu eins og venjulega þá er ekkert stæði laust nálagt nema fatlaða stæðið. Þó svo að mig hafi langað mikið til að leggja í það þá fór ég í stæði á hinum endanum á bílaplaninu. Þegar ég er svo búinn að labba frá bílnum og er að koma að inngangnum og fatlaða stæðinu í ausandi vatnsveðri og roki þá kemur svartur bíll, leggur í fatlaða stæðið, út hoppa fjórir fullfrískir hálvitar og hoppa inn og eru á undan mér í röðinni.... Þannig að ég er numer 12... ok blótandi í hljóði þá ákveð ég samt að bíða. Þegar það kemur svo að fíflunum þá panta þeir 9 subway til að fara með......
2. Á laug þá fór ég og prufaði krossara upp á Hellisheiði. Ég þurfti ekki að leika mér á þessu tæki nema í stutta stund þegar ég var búinn að ákveða að ég yrði að eignast svona hjól og er það í fullri vinnslu núna.

3. Fór í afmælismatarboð til Siggu á laug og fékk betri mat en á bestu veitinarstöðum.
4. Eftir matarboðið var haldið á árshátíð og 25 ára afmæli kayaksklúbbsins. Þar var þónokkuð um drykkju og var mikið stuð á liðinu. Þar náði ég t.d. að vera 5 síðasti til að detta út úr limbókeppninni... En við strákarnir urðum þó að láta í minnipokan fyrir kvennþjóðinni.....

En það var nokkuð ljóst að þær töpuðu í drykkjukeppninni....

5. Á mánudagsmorgunn hringdi ég í tryggingarfélagið til að fá lánaða pening til að kaupa mér krossara.... Þó svo að ég sé búinn að tryggja hjá þeim í mörg ár og aldrei klikkað á greiðslu þá var ekki séns að fá lán til að kaupa krossara nema eiga fasteign... Og það eina sem hann sagði var að ég myndi örygglega þakka honum fyrir seinna....
6. Næsta hugdetta... Ég á rétt á námslokaláni.... tek það og nota sem útborgun í íbuð og kaup á krossara.... Fannst samt rétt að sleppa því að minnast á krossarann og spurði bankastjórann minn bara hvort ég ætti ekki rétt á þessu láni þar sem ég væri að spá í að kaupa íbúð.... Svarið sem ég fékk var á þessa leið.... Borgþór þú ert nú að verða 28 ára, og það er nóg af einstæðum stelpum á þínum aldri í Reykjavík sem eiga íbúð..... Hehe
7. Í dag ákvað ég svo að nenna ekki að standa í þessari vitleisu... fór og skáði bílinn á sölu og kaupi svo bara krossara fyrir mína eigin peninga.... Ég hlýt að komast í vinnuna einhvernveginn....
Held að þetta sé fínt í bili....
Kv. Borgþór....
Posted at 09:17 pm by borgtor
Permalink
Thursday, February 09, 2006
Fékk sendan brandara um austfjarðarþokuna, vil taka það fram að þessi brandari endurspenglar engan vegnin skoðun mína á þessu málum en læt hann vaða samt sem áður....
Þar sem þónokkrir fara óregluleg/reglulega austur að vinna, datt mér í hug að deila með ykkur skýringu sem ég fékk senda, á Austfjarðar-þokunni:
Þeir sem eru mikið fyrir austan, hafa orðið varir við það sem er kallað "austfjarðarþokan" sem er þoka sem gjarnan leggst yfir austurland.. Menn komust að því þegar ég var að vinna þarna að þetta væri náttúrlega eitt besta dæmi um að þróunarkenningin á við rök að styðjast þar sem kvenfólkið fyrir austan er það ófrítt að það mundi ekki vera eðlileg og náttúruleg fólksfjölgun á svæðinu ef að menn hefðu ekki austfjarðarþokuna til þess að blinda mönnum sýn þegar þeir eru í leit að bólfélaga. Þannig að náttúran sér um sína, líka kvenfólk að austan... :-)
Sel það ekki dýrara en ég fékk það gefins á :o)
Hér eru svo tvær myndir af austfjarðarþokunni svona til útskýringar, þessar myndir voru teknar á Borgarfirði á sama staðnum með nokkra klst millibili í sumar.
+

Posted at 10:52 pm by borgtor
Permalink
Wednesday, February 08, 2006
Var að lesa skemmtilega grein áðan og datt í hug að skella nokkrum kommentum úr henni hingað inn.
Ástarvíma er vitfirring. Kærleiksást er skynsemi.

Rannsóknir segja að við getum auðveldlega lært að elska maka sem við höfum aldrei verið ástfangin af.
Efni sem valda ástarvímu má finna í súkkulaði, til að ná sömu sælutilfinningu þarf að borða 15 kg af súkkulaði.
Bæði í dýrum og fólki er dópamín framleitt sem eins konar verðlaun fyrir vel unnið verk. Sama gerist þegar fíkill tekur inn fíkniefnið sitt. Hjá ástföngnu fólki er dópamín-skotið verðlaun fyrir að hafa unnið til þesss að ástin sé endurgoldin.
Ef samband riðar til falls er sem mest kynlíf besta ráðið. Það getur blásið lífi í hormónstarfsemina.
Fyrir ástfangið fólk er það versta sem komið getur fyrir að vera yfirgefið af stóru ástinni sinni. Í stað þess að skapa jákvæðar tilfinningar herja hormónin nú á líkamann með neikvæðum afleiðingum, svo sem, depurð, þunglyndi, hefndarþorsta og reiði. Dópamínið sem heilastofninn framleiðir verðlaunar nú svívirðilegar athafnir og haturshugsannir í staðinn fyrir árangur í ástalífinu.
Í sæði karlmanns er mikil hormónablanda sem lyftir geði konunnar.
Smokkar valda konum depurð.
Kauptu kynlíf í apótekinu. Ef yfirvöld myndu leyfa þá væri hægt að selja ástarhormónaplástra, en þau eiga árðanlega eftir að bíða enn um hríð.
Úr Lifandi vísindi Nr.3/2005
Posted at 06:27 pm by borgtor
Permalink
Sunday, February 05, 2006
Ekki alveg að gera sig þetta blogdrive núna
Merkilegt að í þessi fágu skipti sem ég ætla að blogga... sem er nú ekki svo oft þá kemst ég ekki inn á síðuna.
Annars var þetta hin rólegasta helgi, kíkti í kaffi upp í Raftholt áðan bara svona til að komast aðeins út úr borginni.
Vaknaði reyndar eldsnemma í morgunn eða um 9 30 til að fara á bílauppboð hjá Vöku... þegar við mættum á staðinn kom í ljós að það var ekkert uppboð í dag.
Horfði á evrovision í gærkvöldi... Verð bara að viðurkenna það að þó svo að ég kjósi aldrei í símakostningum af því að mér finnst þær heimskulegar og einungis til þess að ná inn peningum, ekki til að leita að sigurvegara þá kaus ég samt sem áður í gærkvöldi... Silvía nótt var alveg að gera sig.. bara flott show og ágætis lag miðað við hversu döpur hin voru. Meira segja Birgitta náði ekki að gera lagið skemmtilegt sem hún söng. Ég er allan vegna nokkuð viss um að nóttin vinni þetta og það á eftir að verða gaman að sjá hana á sviðinu þarna úti... Spurnig um hvernig evrópubúrar höndli húmorinn Hommi og Nammi....
Kíkti í lítið austfjarðarpartý hjá Röggu frá Breiðdal í gærkvöldi.. Alltaf gaman þegar austfirðingar koma saman, var samt sem áður edrú og fór bara heim að sofa þegar liðið fór í bæinn að taka á því.
Laugardagurinn fór allur í að þrífa bílinn, vaknaði snemma og fór í bílanaust og keypti nánast allar hreinsivörur sem ég fann og svo var farið í að þrífa, var bara nokkuð sáttur eftir 5 klst þrif, en þá var meira segja búið að fara með uppþvottabursta á mótorinn...

Átakið í ræktinni gengur bara nokkuð vel og lítur út fyrir að ég nái markmiðinu bara nokkuð fyrr en ég bjóst við. Er búinn að mæta í Wordclass upp á hvern einasta dag síðan ég keypti kortið og aldrei verið minna en 2 klst á dag,,, Reyndar neyddist ég til að sleppa ræktinni þegar ég var í London, en held að gangan um London vinni það upp, hef aldrei rölt jafn mikið á stuttum tíma.
Posted at 07:01 pm by borgtor
Permalink
Monday, January 30, 2006
Alltaf gott að koma heim.
Verð nú að viðurkenna það að eftir að hafa tekið þrjár lestir til að komast á flugvöllinn og sitja þar í 2 klst og svo 3 klst í flugvélinni þá var það nú bara nokkuð gott að komast heim.
Náði að skoða ótrúlega mikið m.v. að hafa verið í vinnuferð og stoppað í 5 daga. Það sem stendur þó mest upp úr er vísinda safnið sem við kíktum á.
McLaren bíllinn sem Mika klesti.


Á þessu safni voru allar geimflaugar, merkilegir bílar, flugvélar og allir aðrir hlutir sem eiga sinn þátt í vísindaframförum í heiminum.
Löppuðum hring í Hyde park sem er stærðsti garðurinn í London, fórum reyndar sérstaklega til að skoða minningargosbrunn Diönu en eftir 2 klst rölt þá var hann ekki í gangi á þeim tíma sem við vorum þarna.



P.S Harpa, þú hefðir betur varað mig við þessum börum fyrr 
Djammið var tekið fyrir á föstudagskvöldi og þræddum við alla skemmtistaði sem við fundum, best að sleppa djammsögunni hérna þó svo að hún gæti örugglega skemmt mörgum....
Posted at 09:52 pm by borgtor
Permalink
Thursday, January 26, 2006
Spurnig um að láta aðeins vita af sér. Fór til London til að hitta arkitekt og byggingarverkfræðing á þriðjudag, ferðin átti að vera dagsferð og átti að vera flogið heim í gær miðvikudag. Á fundinum var svo ákeðið að annar fundur yrði á sunnudaginn. Þegar svo var komið þá var ákveðið að það væri bara best ef ég færi ekkert heim fyrr en eftir það. Þannig að ég stóð bara í London með engin föt til skiptanna eða neitt annað...
Þurfti að byrja að versla föt og annað nauðsynlegt dót.. Bý í götu sem heitir Montphirler street og er það einbýlis sem er í götu við hliðina á Harrods verslannakeðjuni. Bjór og rauðvín er selt í sjoppunni á móti húsinu og kostar kippa af bjór um 500 kr.
Skrifa meira síðar.. Erum að fara niður á Oxfordstreet að borða og kíkja á skemmtannalífið... Var sagt að pöbbarnir væru opnir til 3 alla daga vikunnar þar...
kv
Posted at 05:34 pm by borgtor
Permalink
Monday, January 23, 2006
Í fréttum er það helst...
Það er nú bara eiginlega ekkert í féttum.
Verð nú reyndar að segja frá því þó svo að ég hafi ekki ætlað að gera það, að ég fór í partý á föstudagskvöld. Var með kippu af bjór og bara í nokkuð góðum fínling. Ekki nema það að ég mætti á svæðið þá voru aðrir byrjaðir að fá sér og bara nokkuð góður fílingur í liðinu, fengu margar gamlar og góðar sögur að fljúga..... Ekki nema það að þegar ég var kominn á annan bjór og það er verið að ræða tap í spurningakeppni framhaldsskólanna. Eitthvað lið vissi ekki hver var númer 14 hjá einhverju NBA liði.... Og það var nóg fyrir Tókan og Gugg, einhver minntist á bolta og sveitta hálfnakta karlmenn... Og næsta 1 og hálfan klukkutíman var hnakkrifist um þjálfarana í Ítalska fótboltanum.... Ekki Íslenska.... Ekki Enska.... Nei heldur Ítalska boltanum!!!! Þegar ég fékk nóg þá voru 3 farnir út og gafst ég upp um 00:30 og ákvað að það væri skárra að fara heim að sofa... Þið getið ímyndað ykkur hversu leiðinlegt þetta var þegar ég fer frekar heim að sofa með 4 fulla bjóra í hendinni!!!!!!
Ekki var dottið í það heldur á laugardagskvöldið, held að ég hefi ennþá verið með hroll frá kvöldinu áður....
En að öðru.... Ég fór og keypti mér lás á skápinn í ræktinni fyrir helgi, nokkuð nauðsynlegur hlutur nema maður vilji láta stela dótinu sínu... En vegna þess að það eru bara opnir vasar á íþróttabuxunum þá ákvað ég að geyma aukalykla af lásnum í bílnum ef hinir myndu nú detta úr vösunum, nokkuð bright fannst mér nú. Svo kom að því í kvöld að ég kem rennandi sveittur niður og ætla að opna skápinn minn... auðvitað var ég búinn að missa lyklanna einhverstaðar. Þá var nú aldeilis gott að eiga varalykla af lásnum út í bíl.... Eða þ.e.a.s. ef lyklarnir af bílnum væru ekki læstir inní skáp!!!!
Þá er það spurning,
a. Á ég að taka leigubíl heim og ná í varalyklana af bílnum, kostar c.a. 2000 kr.
b. Láta lyklasmið koma og opna bílinn fyrir 4500 kr
c. Eða brjóta upp lásinn sem kostaði 225 kr
En þetta er fínt í bili held ég... London í fyrramálið... ætlaði að pakka í tösku en er ekki alveg viss hvað ég þarf að taka með þangað til að stoppa í 20 klst...
Posted at 09:59 pm by borgtor
Permalink
Friday, January 20, 2006
Einhvern veginn finnst mér alltaf vera helgi... samt mann ég eftir því að einu sinni maður var alltaf að bíða eftir næstu helgi... Merkilegt.
Ekki er búið að plana helgina neitt enda var tekið ágætlega á því síðustu helgi. Reyndar voru sögusagnir af einhverju teiti í kvöld....
´Þó svo að mér finnist fátt leiðinlegra en að rölta um búðir og versla föt þá verð ég samt að mæta með rýmingarútsölunni í Outlet í faxafeni. Leit inn þar áðan og fór út með 2 fínar gallabuxur, 2 Everlast peysur, 1 everlast íþróttabuxur, 2 spariboli, 4you skyrtu og Bertoni sparijakka...... Og verð...... 11.500 kr.
svo er það síða dagsins... myndir Á þessari síðu getur maður keypt innrammað copy af hvaða listaverki sem er.
Fann þessa mynd þarna.... bara töff...

Posted at 04:28 pm by borgtor
Permalink
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|