Jæja... kannski ekki búinn að vera sá duglegasti að skrifa hérna en biluð tölva er ástæðan fyrir því, allan vegna að stórum hluta til. Búinn að vera tölvulaus heima núna í 2 vikur sennilega og það er ekki létt fyrir mann sem er búinn að vera í tölvu nánast upp á hvern dag í mörg ár. Fyrst þegar vélin hrundi þá var nokkurra daga vinna inn í vélinni þannig að það var farið í að reyna að ná út af disknum öllu sem var inná honum, það reyndist nokkuð þægilegt fyrir Ottó sem er svo óheppinn að vera eini tölvuséníin sem ég þekki.. Eftir að vera búinn að koma harðadisknum í nothæft ástand þá fór ég og keypti nýjan harðan disk og þar sem ég týmdi alls ekki að fara með vélina í viðgerð þá byrjaði ég að skrúfa hana í sundur til að skipta um disk... Getur ekki verið svo mikið mál... En jú eftir að hafa fundið hvar hann átti að vera og komið honum í þá er bara alveg sama hversu oft ég set vélina upp þá virkar hún bara ekki almennilega. Búinn að setja upp windows home, einu sinni. Windows professinoal 2 sinnum og svo loks fór ég og fékk nýjustu útfærsluna af windows media center og það gekk ekki heldur... Er farinn að halda að drullusokkarnir í búðinni hafi látið mig fá vitlausan disk og þá á ég eftir að drepa einhvern.... Núna er gamli diskurinn kominn aftur í vélina og skröltir hún í gang á honum...
vonandi verður styttra í næstu færslu en síðast...
kv..