Verð nú bara að segja að það er alveg svakaleg bloggleti í gangi, eða kannski er það bara það að það er svo sem ekkert að frétta. Er að vinna fram á kvöld alla daga og reyni að vera duglegur við að vakna í ræktina kl 6 á morgnanna sem verður svo eiginlega til þess að ég sofna nánast undantekningalaust í sófanum þegar ég kem heim.
Fór reyndar á Skólabrú að borða síðasta laugardagskvöld og fékk frábæran mat, Ristaða humarhala með andalifrarpylsu og innbakaðan lambahryggsvöðva o.fl... Bara snilld. Eftir matinn var svo kíkt út á lífið, ´var reyndar ekki drukkið meira en það að ég náði að hengja jakkafötinn upp á herðartré þegar ég kom heim..
Býð spenntur eftir næstu helgi en þá byrjar formúlann, Machlaren bíllinn er auðvitað langfallegstur í ár eins og þau síðustu og verður gaman að sjá þá rúlla þessu upp þetta árið...
Later....