nafn: Borgþór Geirsson
fæddur: 01 09 78
heimili: Naustabryggja 11
Sími: 848-5569
Mail: bg@thi.is
MSN: borgtorgeirs@hotmail.com
   

<< February 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28

Síður sem ég les
Bragi
Ellen
Eva
Drífa
Guggur
Hafþór
Harpa
Heba
Heiðdís
Hlynur
Linda systir
Magni
Maggi
Máni
Myrkur
Óli Björs
Svenni
Ragga babe
Stína
Þórey
7ris

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed

Thursday, February 23, 2006
Sektir og aftur sektir...

Sæl öllsömul... þar að segja ef það er einhver sem les þetta....

Ekkert merkilegt að gerast frekar en fyrri daginn.  Er reyndar að spá í að kíkja á heimaslóðir um helgina og gera eitthvað skemmtilegt.  Skilst að það sé Papaball á Egilsstöðum um helgina. 

Fékk bílinn úr viðgerð í dag þannig að farið var í það eftir vinnu að þrífa hann allan innan sem utan og verður hann væntanlega kominn á sölu í fyrramálið.

Svo er maður búinn að vera ofurduglegur í gyminu, búinn að mæta kl 6.00 alla morgna þessa viku, reyndar gengur mjög hægt að ná takmarkinu sem ég ætlaði að ná áður en maður færi að lyfta af krafti, er 1,5 kg sem vill bara ekki fara.  Spurning um að drekka laxerolíu og fara svo á viktina. Big Smile

Brosti allan hringinn í dag þegar ég borgaði stöðumælasekt af gamla bílnum sem ég átti sem kom á hann eftir að ég seldi hann.  En á þeim tíma sem það tók að færa bílinn af mínu nafni yfir á þann sem keypti hann þá fékk fíflið stöðumælasekt sem ég ætlaði alls ekki að borga.  Svo þegar lögfræðingar kostnaðurinn var farinn að leggjast á ´sá ég að sennilega myndi ég ekki græða mikið á að neita að borga....

Svo til að kóróna allt saman þá fékk ég nýja sekt fyrir að leggja ólöglega fyrir utan wordclass í laugardal kl 21:30 í gærkvöldi.  2500 kr sekt fyrir að leggja á gangstétt, en samt er ekki búið að steypa stéttina!!!!  Bíllinn stóð sem sagt í drullupolli við hliðina á veginum.  Hringdi meira segja sérstaklega í dag til að spyrja hvort þetta væri eitthvað grín en NEI...


Posted at 07:34 pm by borgtor

Svenni
February 24, 2006   06:46 AM PST
 
Helvítis moldargangstéttaverðir
Trausti
February 24, 2006   12:43 AM PST
 
hahahhahahaha . Borgaðiru sektina???
Þú ert ekki jafn þrjóskur og ég hélt..
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry