Frekar lítið í fréttum hérna meginn. Helgin var góð, auðvitað vann Silvia evrovision. Ég kaus hana meira segja 2 svar sinnum og svo flottur karl 1 sinni... Sorrý Magni... en það verður bara svo gaman að sjá hana þarna úti.
Kíkt var í bæinn bæði á föst og laug en var drykkjan alveg í hófi, var ekkert þunnur á mánudegi sem táknar mjög litla drykkju.
Fordinn fer á verkstæði á morgun til að gera við rispurnar á honum síðan einhver reykvíkingurinn keyrði aftan á mig, svo vonandi á sölu fyrir helgi og svo bara seldur sem fyrst þannig að ég geti keypt krossara.
Helgarrúnturinn á sunnudag var svo Stokkseyri, Eyrarbakki og Þorlákshöfn. Verð nú að viðurkenna að ég sá ekki margt merkilegt á þeim rúnti.

Til að sjá einhver fjöll ( sem sjást ekki á suðurlandsundilendinu þá fór ég líka upp í einhvern dal að einhverju skíðasvæði, Fyndið að það skuli nánast ekki vera neinn snjór á svæðinu, fann einu sinni ekki skafl til að festa mig í þó svo að bíllinn hafi verið á sumardekkjum.

Posted at 09:04 pm by borgtor