nafn: Borgþór Geirsson
fæddur: 01 09 78
heimili: Naustabryggja 11
Sími: 848-5569
Mail: bg@thi.is
MSN: borgtorgeirs@hotmail.com
   

<< February 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28

Síður sem ég les
Bragi
Ellen
Eva
Drífa
Guggur
Hafþór
Harpa
Heba
Heiðdís
Hlynur
Linda systir
Magni
Maggi
Máni
Myrkur
Óli Björs
Svenni
Ragga babe
Stína
Þórey
7ris

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed

Tuesday, February 14, 2006
Sæl nú

Eitthvað lítið að frétta hérna meginn.  Er líka afskaplega latur við að blogga.  En svona til að setja nú eitthvað hérna inn þá...

1.   Ég ákvað að fara og fá mér 6 gramma subway fyrir helgi.  Þegar ég renni að esso í Ártúnsbrekku í rigningu eins og venjulega þá er ekkert stæði laust nálagt nema fatlaða stæðið.  Þó svo að mig hafi langað mikið til að leggja í það þá fór ég í stæði á hinum endanum á bílaplaninu.  Þegar ég er svo búinn að labba frá bílnum og er að koma að inngangnum og fatlaða stæðinu í ausandi vatnsveðri og roki þá kemur svartur bíll, leggur í fatlaða stæðið, út hoppa fjórir fullfrískir hálvitar og hoppa inn og eru á undan mér í röðinni.... Þannig að ég er numer 12... ok blótandi í hljóði þá ákveð ég samt að bíða.  Þegar það kemur svo að fíflunum þá panta þeir 9 subway til að fara með......

2.   Á laug þá fór ég og prufaði krossara upp á Hellisheiði.  Ég þurfti ekki að leika mér á þessu tæki nema í stutta stund þegar ég var búinn að ákveða að ég yrði að eignast svona hjól og er það í fullri vinnslu núna.

3.   Fór í afmælismatarboð til Siggu á laug og fékk betri mat en á bestu veitinarstöðum. 

4.   Eftir matarboðið var haldið á árshátíð og 25 ára afmæli kayaksklúbbsins.  Þar var þónokkuð um drykkju og var mikið stuð á liðinu.  Þar náði ég t.d. að vera 5 síðasti til að detta út úr limbókeppninni...  En við strákarnir urðum þó að láta í minnipokan fyrir kvennþjóðinni.....

En það var nokkuð ljóst að þær töpuðu í drykkjukeppninni....

5.   Á mánudagsmorgunn hringdi ég í tryggingarfélagið til að fá lánaða pening til að kaupa mér krossara.... Þó svo að ég sé búinn að tryggja hjá þeim í mörg ár og aldrei klikkað á greiðslu þá var ekki séns að fá lán til að kaupa krossara nema eiga fasteign... Og það eina sem hann sagði var að ég myndi örygglega þakka honum fyrir seinna....

6.   Næsta hugdetta... Ég á rétt á námslokaláni.... tek það og nota sem útborgun í íbuð og kaup á krossara....  Fannst samt rétt að sleppa því að minnast á krossarann og spurði bankastjórann minn bara hvort ég ætti ekki rétt á þessu láni þar sem ég væri að spá í að kaupa íbúð....  Svarið sem ég fékk var á þessa leið.... Borgþór þú ert nú að verða 28 ára, og það er nóg af einstæðum stelpum á þínum aldri í Reykjavík sem eiga íbúð..... Hehe

7.   Í dag ákvað ég svo að nenna ekki að standa í þessari vitleisu... fór og skáði bílinn á sölu og kaupi svo bara krossara fyrir mína eigin peninga....  Ég hlýt að komast í vinnuna einhvernveginn....

Held að þetta sé fínt í bili....

Kv. Borgþór....

 


Posted at 09:17 pm by borgtor

Trausti
February 15, 2006   03:23 PM PST
 
Þetta er rétt hjá bankastjóranum.. en hann gleymdi að nefna að þær eiga líka a.m.k tvö börn....
Svenni
February 15, 2006   07:36 AM PST
 
fáðu þér bara fjallahjól í bónus
Ellen
February 14, 2006   10:29 PM PST
 
hahah þetta er sorglega fyndið...
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry