nafn: Borgþór Geirsson
fæddur: 01 09 78
heimili: Naustabryggja 11
Sími: 848-5569
Mail: bg@thi.is
MSN: borgtorgeirs@hotmail.com
   

<< February 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28

Síður sem ég les
Bragi
Ellen
Eva
Drífa
Guggur
Hafþór
Harpa
Heba
Heiðdís
Hlynur
Linda systir
Magni
Maggi
Máni
Myrkur
Óli Björs
Svenni
Ragga babe
Stína
Þórey
7ris

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed

Sunday, February 05, 2006
Ekki alveg að gera sig þetta blogdrive núna

Merkilegt að í þessi fágu skipti sem ég ætla að blogga... sem er nú ekki svo oft þá kemst ég ekki inn á síðuna. 

Annars var þetta hin rólegasta helgi, kíkti í kaffi upp í Raftholt áðan bara svona til að komast aðeins út úr borginni.  

Vaknaði reyndar eldsnemma í morgunn eða um 9 30 til að fara á bílauppboð hjá Vöku... þegar við mættum á staðinn kom í ljós að það var ekkert uppboð í dag.

Horfði á evrovision í gærkvöldi... Verð bara að viðurkenna það að þó svo að ég kjósi aldrei í símakostningum af því að mér finnst þær heimskulegar og einungis til þess að ná inn peningum, ekki til að leita að sigurvegara þá kaus ég samt sem áður í gærkvöldi...  Silvía nótt var alveg að gera sig.. bara flott show og ágætis lag miðað við hversu döpur hin voru.  Meira segja Birgitta náði ekki að gera lagið skemmtilegt sem hún söng.  Ég er allan vegna nokkuð viss um að nóttin vinni þetta og það á eftir að verða gaman að sjá hana á sviðinu þarna úti...   Spurnig um hvernig evrópubúrar höndli húmorinn Hommi og Nammi....

Kíkti í lítið austfjarðarpartý hjá Röggu frá Breiðdal í gærkvöldi..  Alltaf gaman þegar austfirðingar koma saman, var samt sem áður edrú og fór bara heim að sofa þegar liðið fór í bæinn að taka á því.

Laugardagurinn fór allur í að þrífa bílinn, vaknaði snemma og fór í bílanaust og keypti nánast allar hreinsivörur sem ég fann og svo var farið í að þrífa, var bara nokkuð sáttur eftir 5 klst þrif, en þá var meira segja búið að fara með uppþvottabursta á mótorinn...

Átakið í ræktinni gengur bara nokkuð vel og lítur út fyrir að ég nái markmiðinu bara nokkuð fyrr en ég bjóst við.  Er búinn að mæta í Wordclass upp á hvern einasta dag síðan ég keypti kortið og aldrei verið minna en 2 klst á dag,,, Reyndar neyddist ég til að sleppa ræktinni þegar ég var í London, en held að gangan um London vinni það upp, hef aldrei rölt jafn mikið á stuttum tíma.


Posted at 07:01 pm by borgtor

Boggi
February 6, 2006   10:38 PM PST
 
Myndir þú trúa því ef ég segði að ég hefði keyrt í gegnum miðbæinn á leiðinni heim og séð að það voru svo langar raðir að ég nennti ekki standa í þeim ;)
Ragga Diljá (frá breiðdal haha
February 6, 2006   10:14 PM PST
 
þú ert svo mikill auli að hafa ekki komið með...þrusustuð á okkur kellingunum hehe! En annars var mjög gaman á fá ykkur í heimsókn :)
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry